miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Búin að prófa gsm bloggið
Jæja þá er ég búin að prófa gsm bloggið. Þetta er kannski þræl sniðugt en ég sé ekki alveg notagildið í þessu fyrir mig. En þetta er eflaust njög sniðugt fyrir þá sem eru á fullu í bloggi.
Þetta hlýtur líka að kosta sitt að vera alltaf að tala í símann, til að setja inn á bloggsíðu sem maður getur alveg eins skrifað inn á!!!
Annars er allt gott að frétta af mér og mínum. Við erum að fara heim til Eyja á morgun, og verðum alveg fram í miðjan janúar. Það verður mjög fínt að komast heim og láta mömmu dekra við okkur.
Einnig eru margir sem eiga eftir að sjá litla prinsinn minn og enn fleiri sem hlakka til að sjá hann aftur (ömmur og afar farin að sakna hans). Svo það verður áreiðanlega nóg að gera í gestagangi næstu daga

mánudagur, nóvember 24, 2003
GSMblogg prufa
GSMblogg prufa
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Netið að komast í lag
Þá er netið að komast í gang og skólaverkefnið komið inn á vefinn loksins! Einnig getið þið farið inn á barnaland og séð heimasíðuna hjá dúllunni minni. Því miður hef ég ekki haft mikinn tíma til að skrifa, þar sem líf mitt snýst núna um að gefa brjóst allan daginn!!
En þið getið fylgst með inn á barnaland hvernig gengur.
Annars gengur allt voða vel. Hann sefur bara og sefur og vaknar rétt til að borða. Er algjört krútt:)
Það erlíka nóg að gera í gestagangi, alltaf einhver að koma að kíkja og það er voða gaman. Halla systir ætlar svo að koma um helgina það verður fínt. Mamma og pabbi fóru á sunnudaginn, en mamma var búin að vera hjá mér síðan hann fæddist. það var alveg frábært að hafa hana. En það er ´líka voða gaman að prófa að vera bara þrjú!
En það fer að styttast í að við förum til Eyja, ekki nema tvær vikur þá verðum við þar fram í miðjan janúar.

fimmtudagur, nóvember 06, 2003
skólaverkefni
Ég er búin með skólaverkefnið og það kemur inn á vefinn fljótlega. Netið hjá mér virkar ekki þessa dagana en Eg er að reyna að koma því í gang, kemur vonandi sem fyrst.
lítill prins kominn í heiminn
Það er nú góð ástæða fyrir því hve langt síðan ég skrifaði síðast. Litla dúllan mín var orðin óþolinmóð og vildi komast fyrr í heiminn. Hann fæddist á fimmtudagsnóttina og var 13 merkur og 51 cm. Hann fæddist rúmlega mánuði fyrir tímann og þurfti að vera á vökudeild í einn sólahring, en kom svo til mín. Svo fékk hann smá gulu og þurfti að fara aftur í hitakassa. En við komum heim í gær:)
Ég er að vinna í heimasíðu hans á barnaland.is og set inn linkinn þegar hún er tilbúin.
Ég er að vinna í heimasíðu hans á barnaland.is og set inn linkinn þegar hún er tilbúin.
miðvikudagur, október 22, 2003
Vera dugleg!!
Nú er svo bara að vera dugleg að læra og nota næstu helgi vel (ekkert annað að gerast, aldrei þessu vant!!). Áður en ég byrja að kenna á fullu á mánudag. Þá er gott að vera búin að koma öllu öðru frá mér. Verður víst alveg nóg að gera í kennslunni. Enda er nú aðeins farið að draga úr orkunnu hjá manni, þar sem það er ekki nema mánuður eftir!
Bæ í bili
Bæ í bili
Bústaður og vettvangnám
Þá er ein helgin enn búin (Vá hvað tíminn líður hratt!!). Og vettvangsnámið byrjað. Það var voða fínt í Ölfusborgum um helgina, Amma og afi alveg í skýunum með ferðina. Það var bara borðað og djammað, legið í pottinum og haft það gott. Svo fórum við á Rauðahúsið á Stokkseyri í hádeginu á laugardeginum og fengum geggjaða humarsúpu. Eftir það var svo farið á Geysi, það er alltaf gaman að koma þangað, þó maður hafi nú séð hann oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Á sunnudeginum var svo haldin svaka veisla þar sem fullt af gestum (vinum ömmu og afa ) kíktu í heimsókn. Svo var bara haldið af stað heim seinnipartinn og skriðið snemma upp í rúm eftir erfiða helgi.
Við byrjuðum svo í vettvangsnáminu á mánudaginn, þá vorum við bara í áheyrn, síðan byrjuðu þemadagar í gær (þriðjudag). Við vorum þá settar í að skoða einhverjar stærðfræðibækur á ensku og skoða verkefni í þeim og þýða, svaka fjör!!
Í dag áttum við svo að fara með 8. bekk í vettvangsferð, í Gvendarbrunna og svo í moggann, en viti menn rútan fór á undan okkur!! Svo við brunuðum á eftir henni, en fundum hana ekki og vissum ekkert hvar Gvendarbrunnar eru, svo við misstum af því en hittum svo krakkana niðrí Mogga:) Endaði allt vel að lokum.

fimmtudagur, október 16, 2003
Allt í volli!!
Ég er búin að vera að reyna að setja inn mynd af mér en það gengur ekki neitt??? Og svo hvarf bara textinn sem var á hliðinni, þ.e. tenglar og eldra efni, það er horfið, veit ekki af hverju???
þriðjudagur, október 14, 2003
Er að reyna að setja inn mynd
Jæja vefsíðan komin inn!
Jæja nú er ég búin að setja vefsíðuna inn. Hún er þó ekki alveg fullunnin, en langt komin. Þar er skilasíða námskeiðsins Upplýsingatækni og skólastarf og þar getið þið séð þau verkefni sem ég er búin með.
Fór heim um helgina:)
Það er greinilega bara eitthvað að gerast hjá mér um helgar, ég virðist alltaf bara skrifa eftir þær!
En ég fór heim til Eyja um helgina, það var mjög fínt. Mamma var búin að baka handa okkur þegar við komum á föstudeginum, svo það var nóg étið!!
Annars gerði ég nú ekki mikið annað en að slappa af og heimsækja fjölskylduna. Svo ætlum við að fara í bústað næstu helgi í Ölfusborgir, amma og afi eiga 50 ára brúðkaupsafmæli og öll fjölskyldan ætlar að fjölmenna í Ölfusborgir og fagna því:)
Núna er nóg að gera í að skipuleggja vettvangsnámið sem byrjar í næstu viku, og reyna að koma frá þeim verkefnum sem eftir eru.
Bið að heilsa í bili!